Tími til að blogga

Ohh bara búið að vera allt kolvitlaust. Sideways

Ég er ljón og ég vil hafa það "life in the slow lane" ... Fittar ekki svona mega stress - Fæ bara hrukkur og taugaútbrot !!!

Jæja það góða við stressið er að þá þarf maður að næra sálina vel á eftir. Vera notalegur og elskulegur við sjálfan sig og sýna sjálfri sér smá auka viðurkenningu á eigin dugnaði.

Algjörlega út í hött að við erum alltaf í einhverju kapphlaupi um að vera meira á haus en næsti nágranni. Vitna í dana, heyrði fleygt um daginn að sá hafði á orði hvað íslendingum fyndist það ferlega flott að byrja hversdagslegar kveðjur á "jæja hvað er að frétta ? Oh veistu bara allt brjálað að gera" Gasp

Ég vil quality time fyrir framan sjónvarpið vinna til að hafa gaman af því... hafa tíma til að vera veik án þess að þurfa að vera veik með samviskubit - Eins og það sé ekki alveg nógu fúlt að liggja veikur og geta varla séð um sjálfan sig ... Láta 6 ára soninn fara út í búð að kaupa í matinn og elda....Ja seg þú mér !!!!

Well guys !! þið eruð pottþétt ekki hingað komin til að lesa eitthvað tuð maður fær nú nóg af því alls staðar annarsstaðar - Fullt af bloggum sem hægt er að lesa eitthvað tuð og nöldur. Þið viljið elskurnar mínar vita allt um mig og mína hagi - Ekki satt !!!!

Well ofcourse - Ég er svoddan bulla uppfull af alls kyns bulli sem ég elska að deila með þeim sem lesa dagbókina mína.InLove

Hafið þið tekið eftir að tískudálkar blaðanna birta gjarnan "the model´s pick" stundum fá líka flottar leikkonur að pikka "whats my favorite" . Þar sem aldrei neinn fær mig til að mæla með einhverju cool eða ekki cool þá ætla ég að móta minn stíl hér á blogginu mínu. Ég trítlaði í bæinn um daginn því ég keypti mér tvö pör af nýjum skóm mega cool, mega flottir pæjuskór með mjórri tá og háum hæl.

Fékk candy pink skó og hina lipstick red en vandinn var að ég átti ekkert hot and sexy í stíl við skóna. Af því ég er alvöru pæja !!!

þá er ykkur algjörlega óhætt að treysta því að það sem ég geri er flott.Cool

Hvað er cool !

1.      Svartur leðurjakki úr Oasis (stuttur í mitti svo langir leggir njóta sín vel)

2.      Dökkbláar gallabuxur, skinny tight (halda spikinu á sínum stað og sína flottan rass)

3.      Rauður "halter top" frá Victoria´s Secret (kemur í skálastærðum - með þennan er enginn þörf á silicon barmi)

4.      Rauðir lipstick red skór (alvöru hælar á þessum - til að lengja leggina fyrir buxurnar)

5.      Hárið: (Rauðhetta og Úlfurinn, Nanna ) hún er bæði sæt og skemmtileg og alltaf flott um hárið sjálf - Aveda body adding (líka til í öðrum línum fyrir slétt, krullað etc.)

6.      Húðin: Fyrir konur á blómaskeiðinu Gurlain happylogy, þú sérð muninn á svipstundu !! - Þær ungu og óhörnuðu Este Lauder mildasta línan, fyrirbyggjandi.

7.      Mac þú færð ekki flottari snyrtivöru hér á landi - Bara ekki velta þér upp úr verðinu það skiptir meira máli að hafa punktinn yfir Ið Kissing

8.      Undirfötin eru bara frá Victorias Secret - Jafnvel La Perla toppar ekki V.S. bara heldur dýrari. Body by Victoria er algjörlega MUST TO HAVE - bæði sexy og plain engar blúndur ekkert vesen passar undir allt og er flott undir allt. IPEX er minn uppáhalds - Vil hafa flottan barm (án þess að þurfa að tína silicon púðum á óæskilegum stöðum Blush)

9.      SEXY ilmvatn - Lyktin er algjört must - ég er crazy ilmvatnskona og á amk 5 tegundur hverju sinni en uppáhalds ilmurinn í dag hefur mikinn karakter og lætur taka eftir sér - Provocative

10.  Flottar töskur eru í tísku og eru út um allt - ég er að safna fyrir Karen Millen svartri ... eins gott hún verði ekki búin á næsta visa W00t

11.  Svo að lokum auka tips: bursta tennurnar vel og nota tannþráð; lakka táneglurnar; ganga með naglaþjöl í veskinu og nota veski

Vert þú Icelandic Next Topmodel - Steldu hugmyndum úr tískublöðum en gleymdu ekki að það er flottast að hafa sinn eigin stíl og vera "töff týpa á lausu"  

Hvað er ekki cool

1.      Það er ekki cool að dreyma svæsna kynlífsdrauma um the EX  ... Ekki roðna elskan ef þú lest Þetta Shit happens Halo

2.      Nota ódýrar vörur bara af því þær eru ódýrar óháð hvaða gagn þær gera.

3.      Vera í megrun 12 mánuði ársins. Hvað með það þó ég hafi nokkur aukakíló - Hvað með það þó þín séu aðeins fleiri/færri en mín ... Það pælir enginn í því NEMA ÞÚ

4.      Tima ekki að dekra við sjálfa þig því þú ert að safna fyrir uppþvottavél eða veiðigræjum - Það er ekki dekur !!!!

5.      Prófa aldrei eitthvað nýtt - Stundum þarf maður að ögra sjálfum sér Errm. 

6.   Að vera feiminn við að fá sér rauðvínsglas á mánudögum eða miðvikudögum ... Who cares hvaða dagur vikunnar er - Ef þig langar í rauðvínsglas - Do it !!! Það er ekki nærri jafn fitandi og gosið Woundering

Hér hafið þið það - Until we meet again þema mánaðarins er að vera bæði Hot and SEXY frá mánudegi til Sunnudags Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband