Það er lítil fyrirhöfn að blogga um karlmenn :)

 

Merkilegt nokk en þegar vinkonuhópurinn kemur saman er tvennt á dagskrá. Kettir og karlmenn. Við ræðum frekar lítið um börnin okkar enda eigum við bara venjuleg börn sem ekkert eru í frásögufærandi. Aftur finnum við alltaf eitthvað krassandi um karlmenn  kettir eru aftur áhugamálin svo það er dáltið slúðrað um það sem þeim viðkemur.

Ég ætla að hlýfa ykkur og sjálfri mér við kattarslúðri þar sem ég stundum fæ "overdoze" af þannig slúðri. Aftur ætla ég að festa á blað nokkrar strákasögur sem ég hef safnað í sarpinn Kissing til að gleðja vinkonur mínar með.

Um daginn rak ég augun í all krassandi sögu af karlmanni sem heldur til á einkamál.is og þegar hann krækir í álitlegt deit berháttar hann sig og tekur "lolly pop" dansinn sem á líklegast að heilla kvennkostinn upp úr skónum og redda honum um einn snöggann. Viss um að gaurinn sé nokkuð kynlífssveltur fyrst hann leggur þetta mikið á sig og bendir þetta athæfi hans ekki til að hann fái oft að sletta úr klaufunum í kvennmannsbóli. Að minnsta kosti endaði þessi dans með mjög kvikk leigubílferð beint heim á sinn stað http://www.rebby.blog.is/blog/rebby/  eða svo segir bloggarinn Wink

Ég á vinkonu sem vinnur á vinnustað þar sem eru nokkrir sætir strákar. Við hittum þá nokkra á bar um daginn og slettum létt úr klaufunum enda hafði vinnuhópurinn átt erfiðan keppnisdag út í Viðey. Allir voru í stuði og sérstaklega vinkonurnar sem duttu inn á sama skemmtistað, alveg óvart til að skoða sætu strákana. Ekkert smá mikið dansað þetta kvöld og á endanum lá ég örmagna í fanginu á þessum stimamjúka vinnufélaga og fannst ægilega notalegt að halla mér upp að bringunni á honum meðan róleg tónlistin vaggaði með okkur fram og aftur. Fyrr um kvöldið hafði ég aftur stigið trylltan dans með einum sem var skyrtulaus og alls ófeiminn að hnykla brjóskassann fyrir okkur stelpurnar. Áður en vangadansarinn eða beri karlmaðurinn gerðu eitthvað meira af sér sem viðkemur konu, áfengi og daðri þá kom vinkonan með bleikuslaufuna - pikkaði létt á öxlina með bros út að eyrum og sagði "Nú förum við heim" ... Úps I did it again. Gripin í karlmannsfangi svo ég flýtti mér að hlaupa út á eftir stelpunum og steingleymdi að kyssa strákana bless !!!

Í bílnum sat slaufustelpan hróðug og sagði - Dásamlegt hvað þú ert stjórnlaus elskan !!! Meðan hún veifaði peningum framan í mig sem hún vann í veðmáli við vinnufélagana J - Á minn kostnað og ég hlaut engann bónus fyrir vikið !!!

Ég enn að leita að SHARMATRÖLLI eins og þeim sem heillaði mig á Silfurballinu þegar ég varð næstum því IN LOVE InLove Allir straumar voru í gangi og ég skal næstum þora að fullyrða að það var ekki bara Kampavínið sem hafði þessi áhrif þegar hitabylgja læddist niður frá heila og ... ja þið megið geta hvert svo W00t

Nú þarf ég næst að finna draumaprins sem ég heillast af alveg upp úr skónum. Einn sem ég horfi á með aðdáunaraugum og hlusta hugfangin á allt sem hann segir ... Vegna þess að allt sem hann segir er svo snjallt. Þegar ég finn hann þá ætla ég að giftast honum Heart

Ekki er í frásögu færandi að ég þarf að láta laga lóðina við húsið mitt. Ég hef trassað það að hirða almennilega um lóðina, þykist vera að hreinsa til í garðinum en í reynd hundleiðist mér garðvinna ... eða mér leiðist að koma mér í verkið. Kanski ekki svo leiðinlegt þegar ég er komin með hausinn ofan í moldina. Þá er þetta bara hin fínasta útrás að rífa upp fífla með rótum og svo verður maður ægilega stoltur að horfa á hvað maður er búin að taka fínt til þegar upp er staðið.

Verkið sem þarf að gera er aftur eitthvað sem ég kann ekki sjálf og því fór ég í símaskránna til að hafa uppi á fagmanni. Í símanum kveður við rödd sem var bara frekar sexy karlmannsrödd. Ég segist vera Margrét og hann kynnir sig og við ákváðum að hann kæmi að kíkja á það sem mig vantaði að láta vinna.

Fyrir framan mig stuttu seinna stóð þessi líka svakalega sæti strákur. Töffaralegur, ilmaði vel og með svona líka sæt augu !! Ég þurfti að taka mig á til að muna að hann var ekki mættur til að ég gæti starað á hann fram á kvöld Sideways Wish he was !!!

Nema hvað - Nú stríða vinkonurnar mér svakalega á því að ég sé daðrari. Ég held því fram að ef ég kann að daðra þá er það bara við karlmenn sem ég í raun ætla ekkert að vera að daðra við Cool 

Þegar fyrir framan mig stendur karlmaður sem mér finnst svakaleg sexy eða skrambi hot looking þá verð ég algjörlega eins og mesta flón Alien Ég stóð og hlustaði á sjálfa mig svo kjánalega ... Reyna að vera svolítið hress og sharmerandi án þess að það væri alveg að takast. Öll orð komu svo klaufalega út úr mér og böggluðust fram og aftur áður en ég stamaði þeim loks út. Ég ætlaði að reyna að dilla rassinum þegar ég gekk á undan honum en ... það var bara ekki að gera sig með úfið hárið og hnukrótta lopapeysuna.

Á endanum horfði strákurinn á mig og sagði þegar hann sá hungurlookið í augunum "það er mjög mikið að gera núna hjá mér ... Ég vinn bógstaflega allan sólarhringinn enda í námi erlendis á veturna" Ok !!! svo ég hætti bara við að spyrja hann hvort ég mætti ekki bjóða honum á deit LoL Nei djók !!! ég er ekki svona frökk ...hehehehehehe !!! Ef þetta væri eins og í Beverly Hills sápunni góðu þá hefði hann án efa daðrað við mig og boðið mér út þó svo hann væri að vinna mikið Errm ... Face it mitt líf og uppákomur í mínu lífi eru bara engann veginn neinar Beverly Hills 90201 !! Nema dramatíkin hún á dáltið upp á pallborðið Blush

Aftur vona ég að ég sjái kanski eitthvað meira af þessum sæta því hann ætlar mjög líklega að taka verkið að sér svo nú þarf ég bara að æfa mig aðeins í að daðra við stráka sem mig langar til að daðra við og læra að dilla rassinum þó ég sé í lopapeysu með úfið hár J Getur úfið hár ekki bara verið dáltið sexy líka !!!!

Ég stefni á næturlifið á laugardagskvöldið svo strákar ef þið viljið krækja í mig áður en ég geng út eða sá sæti býður mér út Wink þá skuluð þið skella á ykkur spariskóna og tælandi rakspíra og skvetta úr klaufunum með mér Wizard

Ef guð lofar verður heitt og heitt og bara meira heitt í veðri þegar strákarnir mæta í garðverkið og þá er aldrei að vita nema ég hafi stælta bera karlmenn í garðinum hjá mér í steikjandi sólskyni !!!!  Jæja nú verð ég að hætta ... Vó Vó ... þetta endar með vitleysu svo ég ætla að halda í háttinn með alla mínar villtu fantasíur J


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband